Leader

Nýr starfsmaður

 

Verkefni

 

Til liðs við VoV hefur gengið Ásgeir Haukur Einarsson. Hann mun aðallega sinna sölu og þjónustu á vélum og varahlutum frá Alfa Laval. Ásgeir er vélfræðingur frá Vélskóla Íslands. Þjónustusimi Alfa Laval er 663 3090

VoV býður Ásgeir velkominn til starfa og er ósk okkar að honum verði vel tekið af viðskiptavinum okkar.

Fráveitukerfi

Varma & vélaverk hefur sérhæft sig í ráðgjöf, útvegun og uppsetningu
á hverskonar búnaði til hreinsunar á fráveituvatni.
Starfsmenn okkar komu við sögu við byggingu Ánanausta og Klettagarða-
hreinsistöðvana og búnaður frá okkur er í eftirfarandi hreinsistöðvunum.
• Hveragerði
• Hafnarfirði
• Bifröst
• Varmalandi
• Reykholti
• Hvanneyri

Búnaður okkar verður einnig í hreinsistöðvum sem verið er að reisa á
• Akranesi
• Kjalarnesi
• Borgarnesi
• Akureyri

Ketilkerfi

Hjá Varma & vélaverki er að finna sérfræðiþjónustu á hversakonar kötlum,
gufu og vatnshitakötlum bæði fyrirr olíu og rafmagn há og láspennta.
Við gerum arðsemisathuganir, hönnum ketilkerfi, útvegum verð og gerum
tilboð í allt sem varðar ketilkerfi. Einnig tökum við okkur alverktöku frá hönnun
til notkunnar og skilum ketilkerfum gangsettum til eigenda.
Við höfum komið við sögu m.a hjá eftirtöldum viðskiftavinum.
• Mjólkursamsölunni í Búðardal, Ísafirði, Akureyri, Egilstöðum og á Selfossi
• Fóðurblöndunni í Reykjavík og hjá Bústólpa á Akureyri
• Rækjuverksmiðjunum á Hólmavík, Akureyri, Bolungavík, Ísafirði
• Orkubúi Vestfjarða, Rarik, Orkuveitu Reykjavíkur
• Vífilfelli á Akureyri, Ölgerðinni
• Fiskimjölsverksmiðjunum í Neskaupstað, Vestmannaeyjum, Vopnafirði, Akranesi
• Plastverksmiðjum Promens, Plastgerð Suðurnesja, Plastási, Plasteyri, Borgarplasti

Fleytikerfi fyrir fiskvinnslu

Hollenska fyritækið Redox Environmental b.v.. framleiðir vatnshreinsibúnað fyrir
affalsvatn frá iðnaði og sveitarfélögum ásamt því að framleiða endurvinnslubúnað.

Vélaverk hefur átt gott samstarf við Redox í 9 ár
og á þeim tíma verið sett upp hér á landi vatnshreinsikerfi
fyrir fiskimjölsverksmiðjur í kjúklinga og sláturhús,
rækjuverksmiðjur og fiskvinnslur með frábærum árangri.

Redox framleiða búnað sem hentar fyrir íslenskar aðstæður
og uppsetningar hafa verið í fullu samráði við Hollustuvernd
og heilbrigðisyfirvöld.

 

Meðal viðskiptavina Vélaverks ehf. sem hafa sett upp búnað frá
Redox má nefna fiskimjölsverksmiðjur Haraldar Böðvarssonar,
F&L/ Samherja, Ísfélagsins, Krossanes, Hraðfrystistöð Þórshafnar,
kjúklingasláturhús Móa og rækjuverksmiðjur Strýtu og Fiskiðjusamlags
Húsavíkur. Einnig hefur verið sett upp vatnshreinsikerfi í fiskvinnslu
Ísfélags Vestmannaeyja.