|

Creditinfo hefur unnið að ítarlegri greiningu sem sýnir hvaða íslensku fyrirtæki fá bestu einkunn í styrk- og stöðugleikamati félagsins.
Af rúmlega 32.000 fyrirtækjum sem skráð eru í Hlutafélagaskrá reyndust 245 fyrirtæki uppfylla þau skilyrði sem Creditinfo setur til að fá viðurkenningu sem framúrskarandi fyrirtæki. Vottun af þessu tagi þekkist víða erlendis en á stærri mörkuðum er algengara að skilyrði vottunar séu ekki eins ströng og ákveðið var að setja hér á landi. Sjá fréttir
kkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkk
|
|
- Fráveitukerfi
-
Varma & vélaverk hefur sérhæft sig í ráðgjöf, útvegun og uppsetningu á hverskonar búnaði til hreinsunar á fráveituvatni. Starfsmenn okkar komu við sögu við byggingu Ánanausta og Klettagarða- hreinsistöðvana og búnaður frá okkur er í eftirfarandi hreinsistöðvunum. • Hveragerði • Hafnarfirði • Bifröst • Varmalandi • Reykholti • Hvanneyri
Búnaður okkar verður einnig í hreinsistöðvum sem verið er að reisa á • Akranesi • Kjalarnesi • Borgarnesi • Akureyri
- Ketilkerfi
-
Hjá Varma & vélaverki er að finna sérfræðiþjónustu á hversakonar kötlum, gufu og vatnshitakötlum bæði fyrirr olíu og rafmagn há og láspennta. Við gerum arðsemisathuganir, hönnum ketilkerfi, útvegum verð og gerum tilboð í allt sem varðar ketilkerfi. Einnig tökum við okkur alverktöku frá hönnun til notkunnar og skilum ketilkerfum gangsettum til eigenda. Við höfum komið við sögu m.a hjá eftirtöldum viðskiftavinum. • Mjólkursamsölunni í Búðardal, Ísafirði, Akureyri, Egilstöðum og á Selfossi • Fóðurblöndunni í Reykjavík og hjá Bústólpa á Akureyri • Rækjuverksmiðjunum á Hólmavík, Akureyri, Bolungavík, Ísafirði • Orkubúi Vestfjarða, Rarik, Orkuveitu Reykjavíkur • Vífilfelli á Akureyri, Ölgerðinni • Fiskimjölsverksmiðjunum í Neskaupstað, Vestmannaeyjum, Vopnafirði, Akranesi • Plastverksmiðjum Promens, Plastgerð Suðurnesja, Plastási, Plasteyri, Borgarplasti
- Fleytikerfi fyrir fiskvinnslu
-
Hollenska fyritækið Redox Environmental b.v.. framleiðir vatnshreinsibúnað fyrir affalsvatn frá iðnaði og sveitarfélögum ásamt því að framleiða endurvinnslubúnað.
Vélaverk hefur átt gott samstarf við Redox í 9 ár og á þeim tíma verið sett upp hér á landi vatnshreinsikerfi fyrir fiskimjölsverksmiðjur í kjúklinga og sláturhús, rækjuverksmiðjur og fiskvinnslur með frábærum árangri.
Redox framleiða búnað sem hentar fyrir íslenskar aðstæður og uppsetningar hafa verið í fullu samráði við Hollustuvernd og heilbrigðisyfirvöld.
Meðal viðskiptavina Vélaverks ehf. sem hafa sett upp búnað frá Redox má nefna fiskimjölsverksmiðjur Haraldar Böðvarssonar, F&L/ Samherja, Ísfélagsins, Krossanes, Hraðfrystistöð Þórshafnar, kjúklingasláturhús Móa og rækjuverksmiðjur Strýtu og Fiskiðjusamlags Húsavíkur. Einnig hefur verið sett upp vatnshreinsikerfi í fiskvinnslu Ísfélags Vestmannaeyja.
|